Skilmálar

Það er einfalt og þægilegt að versla hjá okkur. Þú velur vöru, setur í körfu, velur greiðslufyrirkomulag og pöntunin er afgreidd. Í kjölfarið færðu kvittun fyrir vörukaupunum í tölvupósti og þar með er kominn á samningur á milli þín og Adidas. Sé varan uppseld verður haft samband við þig hið fyrsta og þér boðin önnur vara eða endurgreiðsla. Adidas áskilur sér rétt til að afgreiða ekki pantanir, t.d. ef vara er vitlaust verðmerkt eða uppseld, og til að breyta verðum og vöruframboði. Viðskiptavinur fær þá endurgreitt eða getur valið sér aðra vöru

UPPLÝSINGAR UM SELJANDA

Seljandi er Sportmenn ehf Kennitala: 560891-1219. Dvergshöfða 2, 110 Reykjavík

SKILAFRESTUR

Viðskiptavinir okkar hafa 14 daga til að hætta við kaupin að því tilskildu að þeir hafi ekki notað vöruna, hún sé ekki sérsniðin þörfum kaupanda, henni sé skilað í góðu lagi í óuppteknum upprunalegum umbúðum og að greiðslukvittun fylgi með. Niðurtalning hefst þegar varan er afhent skráðum viðtakanda. Varan er endurgreidd að fullu innan 14 daga eftir að henni er skilað ef ofangreind skilyrði eru uppfyllt.

Við skil er best að skrá sig inn á dropp.is og fylla út vöruskil. Fara svo með pakkann á næsta Dropp stað, um leið og varan kemur til okkar fer endurgreiðslu ferlið af stað.

Ekki hika við að heyra í okkur ef eitthvað er óljóst. netverslun@adidas.is

VERÐ

Öll verð í netversluninni eru í íslenskum krónum og með virðisaukaskatti (VSK) og birt með fyrirvara um innsláttarvillur. Verð í netverslun getur breyst án fyrirvara t.d. vegna rangra verðupplýsinga, útsölu eða rangrar skráningar samanber ákvæði þess efnis hér að framan. 

Greiðslumöguleikar

Seljandi notar örugga greiðslugátt frá Teya. Hægt er að greiða með öllum helstu greiðslukortum og debetkrotum einnig greiðslum frá Netgíró.

EIGNARRÉTTARFYRIRVARI

Seldar vörur eru eign seljanda þar til kaupandi hefur greitt kaupverðið að fullu.

TRÚNAÐUR

Seljandi heitir viðskiptavinum fullum trúnaði um allar upplýsingar sem þeir gefa upp í tengslum við viðskiptin. 

LAGAÁKVÆÐI

Um skilmála þessa gilda ákvæði laga um húsgöngu- og fjarsölu nr. 96/1992, laga um lausafjárkaup nr. 50/2000 sem og ákvæði laga um neytendakaup nr. 48/2003, eftir því sem við getur átt . Niðurtalning á öllum frestum sem nefndir eru í lögum nr. 96/1992 hefst þegar móttaka vöru á sér stað.

HÖFUNDARRÉTTUR

Allt efni á www.adidas.is texti, grafík, lógó og myndir, eru eign Adidas Global og Sportmenn ehf.

VARNARÞING

Þessi samningur er í samræmi við íslensk lög. Rísi mál vegna hans skal það rekið fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur. Skilmálar þessir gilda frá 20. maí 2011.

Nánari upplýsingar

Ef þú þarft nánari upplýsingar, sendu okkur þá fyrirspurn á netverslun@adidas.is og við svörum þér eins fljótt og auðið er.