Skráðu skil eða skipti hér. Þú þarft engan aðgang, aðeins pöntunarnúmerið og netfangið sem þú pantaðir með. Pöntunarnúmerið er í staðfestingarpóstinum.
Viltu bæði skila og skipta? Sendu tvær beiðnir: fyrst „Skipta í aðra stærð“, svo „Skila“ fyrir hina vöruna.
Vantar þig aðra stærð? Fljótlegast er að panta réttu stærðina strax og skrá skil á hinni hér fyrir neðan. Þá tryggir þú þér stærðina og skilar hinni á Dropp-stað þegar þú sækir nýju. Við endurgreiðum eins fljótt og hægt er eftir að varan er komin til okkar.