Viltu skila eða skipta gjöf?
Við skiptum í rétta stærð eða gefum út inneign (store credit).
Skilafrestur: til 11. janúar 2027.
Keyptir þú vöruna sjálf/ur?
Skráðu skil eða skipti á adidas.is/skil með pöntunarnúmerinu og netfanginu sem þú pantaðir með. Þú þarft ekki að senda okkur póst.
Svo límir þú Dropp-skilamiðann á pakkann og skilar honum á næsta Dropp-stað.
Fékkstu vöruna að gjöf? Sendu okkur póst fyrst
Þá ertu ekki með pöntunarnúmerið. Sendu tölvupóst á netverslun@adidas.is áður en þú pakkar og sendir.
Nauðsynlegar upplýsingar í póstinn
- Nafn
- Dropp skilamiða-númer
- Vörunúmer og stærð (mynd af miða á vörunni er frábær)
- Hvort þú vilt skipta í aðra stærð eða fá inneign
- Ef þú vilt aðra stærð: Dropp-staðurinn sem við eigum að senda á
Ekki skila til Dropp fyrr en þú færð staðfestingu frá okkur.
Endursending
- Skilamiði frá Dropp fylgir sendingum okkar og er fyrirfram greiddur.
- Tryggir að varan komist aftur í vöruhús og að við getum rakið upprunalega pöntun og greiðslu.
Skrefin
- Hafðu samband → þú færð staðfestingu og leiðbeiningar.
- Skilaleið: við notum aðeins Dropp — frí og rekjanleg endursending.
- Móttaka: þegar varan er skráð móttekin hjá okkur hefst afgreiðsla.
Skilyrði
- Varan er ónotuð og í upprunalegum, óskemmdum umbúðum.
- Gjafamiði frá okkur eða kvittun fylgir með.
- Varan þarf að vera keypt hjá adidas.is.
Veljir þú annan flutningsaðila en Dropp berð þú ábyrgð á sendingunni þar til hún er skráð móttekin hjá okkur.
Afgreiðsla
- Skipti í stærð: vara er send á valinn Dropp-afhendingarstað um leið og skilavaran hefur verið móttekin og afgreidd í vöruhúsi.
- Gjafaskil: gefin út inneign (store credit) — ekki endurgreitt.
- Hraði: afgreitt eins fljótt og auðið er eftir móttöku í vöruhúsi.
Algengar spurningar
Hvar finn ég pöntunar-/skilamiða-númer?
Í staðfestingarpósti og á Dropp skilamiðanum sem fylgdi pakkanum. Gjafamiðinn (QR) staðfestir kaupstað og skilafrest.
Má skila beint til Górilla?
Nei — vinsamlegast hafðu alltaf samband fyrst og skilaðu eingöngu með Dropp samkvæmt leiðbeiningum.
Gallaðar/skemmdar vörur?
Hafðu strax samband og sendu myndir; við leiðum þig í gegnum ferlið.