
Árið 2010 mun adidas ekki bara færa þér betri hlaupa- skó og fatnað
heldur mun adidas hjálpa þér að verða betri hlaupari. miCoach kerfið
hjálpar þér að skipuleggja þig, æfa og fylgjast með árangri á
skilvirkari hátt en áður. miCoach Pacer þjálfar þig síðan og sér til
þess að þú náir þínum markmiðum
Kerfið er í raun þrískipt. Það eru tvær mismunandi útgáfur af
gagnvirkum hlaupaþjálfum sem hjálpa þér að stilla álagið rétt á æfingum
og svo síðan micoach.com þar sem hægt er að skipuleggja æfingar,
fylgjast með árangrinum og fá innblástur til þess að ná settum
markmiðum.
Fyrsta skrefið þitt að bættum árangri í hlaupum í ár er að skrá þig á
micoach.com. Þar setur þú inn upplýsingar um líkamsástand, velur þér markmið og
æskilegt æfingaálag og getur látið miCoach búa til sérsniðið
æfingaprógramm til þess að hjálpa þér að ná þínum markmiðum. Síðan er
hægt að færa allar upplýsingar um tíma og vegalengdir æfingar ásamt öðrum upplýsingum inná
miCoach og fylgjast með hvernig æfingunum miðar áfram.
Til þess að fylgjast með þú farir rétt að á æfingum og álagið sé
hæfilegt þá býður adidas upp á tvær mismunandi útgáfur af miCoach
tækjum. Það fyrra er miCoach Zone sem er púlsmælir sem gefur þér
upplýsingar um álag byggt á þeim svæðum (Zones) sem
þjálfunaráætlanirnar byggja á. Svæðin eru litamerkt og með því að vera
í réttu svæði þá er álagið alltaf mátulegt til þess að æfingar skili
sem mestum árangri.
Það sem skilur miCoach frá öllum svipuðum kerfum er miCoach Pacer
tækið. Þetta litla tæki gerir öllum kleift að vera með sinn eiginn
hlaupaþjálfara með sér í öllum hlaupum. miCoach Pacer er tengdur við
púlsmæli og skrefamæli og þjálfar þig á meðan þú hleypur með því að
segja þér að hlaupa hraðar eða hægar eftir því sem við á. Þú getur líka
fengið allar upplýsingar um vegalengd, hraða, tíma, púls með því að ýta
á einn takka. miCoach Pacer er hægt að tengja við alla mp3 spilara og
lækkar hann þá sjálfkrafa í tónlistinni á meðan þú færð þær upplýsingar
sem þörf er á. miCoach Pacer má svo tengja við micoach.com, hlaða upp
öllum upplýsingum um hlaupin þín, og skoða þær á einfaldan og
skiljanlegan hátt.
adiStar, Supernova og Response hlaupalínurnar frá adidas bjóða síðan uppá fatnað og skó sem tengjast tækjunum. Fötin eru með vösum fyrir tækin og stöðum til þess að þræða snúrur og heyrnatól. Í skónum er síðan hólf undir innleggjunum þar sem vegalengdarmælinum er komið fyrir og þá þarf ekki að hafa áhyggjur af því að hann detti af eins og ef hann er festur á reimarnar.
Endilega kíktu á
micoach.com, skráðu þig og sjáðu hvaða möguleikar eru í boði.