Þegar Adi Dassler skráði fyrirtækið sitt "Adi Dassler: adidas Schuhfabrik", þann 18. ágúst 1949, grunaði hann ekki að 60 árum síðar væri vörumerkið með rendurnar þrjár eitt þekktasta og árangursríkasta vörumerkið í heiminum. Á þessu ári fagnar adidas 60 ára afmæli sínu með því að líta á merkustu augnablikin í sögu þess.
Það hljómar enn ótrúlega að hlédrægur skósmiður frá litlum bæ í Þýskalandi hafi þróað íþróttavörur sem voru svo frumlegar og fullkomnar að þær urðu eftirsóttar af íþróttafólki um allan heim. Þegar hann lét undan ástríðu sinni fyrir íþróttum og nýjungum skapaði hann vörumerki sem er jafn gott og hvað annað.
Ótrúleg saga en ekki óhugsandi. Fyrir adidas er ekkert ómögulegt.
Sé það hin fullkomna tía sem Nadia Comaneci fékk, stökk Bob Beamon í sögubækurnar, kraftaverkið í Bern eða hin gullna "slemma" Steffie Graf – þá hefur adidas verið hluti af merkustu augnablikunum á keppnisvöllum um allan heim og sýnt sömu ástríðu og nýjungagirni líkt og Adi Dassler þegar hann stofnaði fyrirtækið fyrir öllum þessum árum. Það eru þessar sögur sem enn veita adidas innblástur 60 árum síðar og munu gera um ókomna tíð.
"Áhugi og ástríða Adi Dassler fyrir íþróttum var aðaláherslan í lífi hans. Hann leit á það sem hlutverk sitt að hjálpa öllum íþróttamönnum að standa sig betur með því að veita þeim bestu hugsanlegu vöruna. adidas hefur staðið við þessa stefnu í 6 áratugi og því orðið eitt þekktasta og vinsælasta vörumerkið í heiminum. Hvatning stofnanda fyrirtækis okkar og nána samband hans við íþróttir mun halda áfram að móta stefnu okkar í framtíðinni á leið okkar að verða stærsta íþróttavörumerkið í heiminum, " segir Erich Stamminger, forseti adidas.
Adi Dassler lést árið 1978, þá 78 ára að aldri, en hugmyndir hans, vinna og ástríða lifa áfram í dag. Með nýjungum, nýjum deildum og þróun reiðir adidas sig enn á mottó stofnandans sem sýnir sig í viðhorfi merkisins: Ekkert er ómögulegt.
