Lesa frétt

2.7.2009

Fáðu aukinn kraft í æfingarnar þínar með nýrri ilmefnatækni - haust/vetur '09 línan í adilibria

Stundum eru þessar vikulegu æfingar í ræktinni eða útiæfingar erfiðari en áður, sérstaklega þegar hvatningin er lítil og þú leitar eftir þessari smá aukaorku til að koma þér í gegnum æfinguna.
Nýja adidas adilibria línan sem kemur í búðir í ágúst skartar hinni glænýju Skintex® tækni sem inniheldur örvandi og hvetjandi nauðsynlegar olíur og E-vítamín krafta sem losa ilmandi efnisþætti sína þegar núningur verður á æfingunni sem örvar örhylki sem eru ofin í efnið. Þetta hjálpar til við að endurvekja skilningarvitin og örvar efnaskiptin, þetta gefur þér þennan smá aukaorku til að klára æfinguna.

Innihaldsefnin í nýju Skintex® tækninni voru sérvalin vegna ákveðinna orkugefandi þátta til að hressa við og endurlífga skilningarvitin. Þau eru meðal annars, sítróna fyrir örvun og jafnvægi, rósmarín fyrir endurreisn, E-vítamín fyrir andoxunarþætti þess og ólívu olía til að stuðla að náttúrulegum hæfileikum líkamans til að græða sjálfan sig. Þessi tækni verður í eftirfarandi flíkum, adilibria Strap Tank, adilibria Studio Tee og adilibria ¾ Tight.

Auk þessara tækninýjunga mun hin nýtískulega og glæsilega adilibria lína innihalda skó við hæfi, aukahluti og fatnað til æfinga, hlaups eða tennisiðkunar.

Haust/vetur 2009 línan verður fáanleg frá ágúst 2009 í adidas concept store og einhverjum verslana Útilífs.

<<BTN_BACK