Lesa frétt

28.5.2009

Fætur Messi fá annað húðlag - adidas SprintSkin

adidas kynnir í samvinnu við Lionel Messi og Emmanuel Adebayor nýja F50i fótboltaskóinn. Brautryðjandi tækni og framúrskarandi hönnun gera F50i að hinum fullkomna fótboltaskó fyrir þá leikmenn sem geta ráðið úrslitum leiks með snilli sinni og veitt liðsfélögum sínum innblástur.

“Mér hefur aldrei liðið eins vel í nýjum fótboltaskóm. Hið ótrúlega þunna efni með ótrúlegum lit og unglegri hönnun gerir mér kleift að spila af fullri getu á vellinum. Fullkomin snerting við boltann er ómissandi fyrir mig,” segir hinn stórhrifni Lionel Messi, sem hefur nú þegar prófað F50i skóinn í margar vikur á æfingum.

adidas hefur gert frekari endurbætur á hinum vel þekkta F50 TUNIT™ og bætt við nýjum tækniatriðum. F50i er fyrsti fótboltaskórinn með eins-lags efri hluta, hið nýja SprintSkin. SprintSkin umlykur fætur leikmannsins eins og annað húðlag. Þetta gerviefni er bæði lipurt, vatnsfráhrindandi og passar alltaf fullkomlega. Þetta efni léttir skóinn enn frekar án þess þó að minnka stöðugleikann sem er leikmanninum svo mikilvægur.

Lionel Messi spilaði í bláum glansandi F50i skóm í úrslitaleik Meistaradeildarinnar í gær og skoraði í þeim eitt mark. Hann fagnaði markinu með því að klæða sig úr hægri skónum og kyssti skóinn.
Frá og með 6. júní munu leikmenn um allan heim klæðast þessum skóm í leikjunum í undankeppninni um laust sæti á HM 2010.

Nýji F50i skórinn, í bláu og svörtu, kemur í sölu um allan heim í júlí. En í ágúst kemur hann einnig í hvítu.
Skórnir munu verða til sölu í adidas Concept Store í Kringlunni.

Til viðbótar við Lionel Messi (FC Barcelona) og Emmanuel Adebayor (Arsenal FC) munu eftirfarandi leikmenn kynna nýja F50i skóinn; David Villa (Valencia CF), Samir Nasri (Arsenal FC), Arjen Robben og Gonzalo Higuain (Real Madrid), Salomon Kalou og Ashley Cole (Chelsea FC), Lukas Podolski (FC Bayern München), Johan Volanthen (Red Bull Salzburg), Jermain Defoe (Tottenham Hotspur) og Steven Pienaar (Everton FC).

F50i og TUNIT™ tæknin

F50i skartar einnig TUNITTM tækninni sem er búin að sanna sig, þannig að það verður áfram jafn auðvelt fyrir leikmenn að sníða skóinn að sinni eigin þörf í hvert skipti .
Þessi einstaki skór er fimmta kynslóð F50, hann er með hinni margþættu TUNIT™ tækni, SprintSkin, hitalímdri reimahlíf og TRAXION® tækninni.
Leikmenn geta valið á milli margra gerða efri hluta, tveggja mismunandi grinda, tveggja mismunandi innleggja og þremur gerðum takka.

Efri hlutinn

F50i gerir hverjum leikmanni fyrir sig kleift að sníða fótboltaskóinn að sínum þörfum og veðuraðstæðum. Leikmenn geta valið um þrjú mismunandi efni. Það fyrsta er hið lipra og vatnsfráhrindandi SprintSkin gerviefnið í bláu og svörtu. Númer tvö er hefðbundinn leður efri hluti í svörtu eða hvítu og það þriðja er hinn ótrúlega létti og CLIMACOOL® efri hluti í bláu.
Efri hlutinn úr gerviefninu er einnig með hitalímdri reimahlíf. Reimahlífin eykur snertisvæðið á milli bolta og skós og minnkar áhrif reimanna og stjórnun boltans. Reimahlífin kemur einnig í veg fyrir að vatn komist inn í skóinn.

Grindin

Annar hluti skósins sem hægt er að breyta er að innanverðu. Leikmenn geta valið á milli annarra tveggja grinda sem takkarnir eru festir við. Comfort grindin býður upp á fullkominn stöðugleika og dreifingu á þrýstingnum frá tökkunum, en létta grindin býður einnig upp á hámarks sveigjanleika í tábergshlutanum og stórlega minnkaða þyngd.

Takkarnir


Grindin sem er valin er sett inn í skóinn og eru takkarnir skrúfaðir í að utanverðu. Þrjár gerðir af tökkum með TRAXION® tækni tryggja fullkomið hald og grip, sama hverjar aðstæðurnar á vellinum eru.

Innleggið

Að lokum geta leikmenn einnig ákveðið hversu mikil þægindi og öndun skórinn býður þeim með vali á innlegginu. Bæði hið formótaða, mjúka, comfort innleggið og hið þynnra, gataða og þar af leiðandi létta, öndunargóða innlegg bjóða upp á mikil þægindi.

Hælstykkið

Líkt og forverar hans mun F50i vera með hálf-gegnsætt hælstykki. Hið gegnsæja TPU veitir meiri lækkun í þyngd skósins, aukinn stöðugleika og sveigjanleika vegna mismikils stífleika. Efnið í hælstykkinu, þar sem þörf er á miklum stöðugleika, er sterkt og endingargott. Því nær sem það táberginu því mýkra og sveigjanlegra verður það. Niðurstaðan er nýtískulegur, léttur og sveigjanlegur fótboltaskór fyrir alla leikmenn.

<<BTN_BACK